döddjeis
13.11.2005 23:38:03 / bjorngayr

blah blah

No it's not a TV show, this is the real life.... a sudden change in the Blogg industry.

Ég hef hér með sameinast einum mesta freðhausnum í bransanum og slúðurkónginum Brynjarði Godsyni og munum við standa sameiginlega að bloggsíðu undir /bgudlaugsson merkinu

endilega kíkja á bgudlaugsson

Ég mun líklega koma með blogg um mitt einkalíf líkt og ég hef gert en mjög líklega munu áherslurnar í blogginu breytast og ætla ég að láta á þetta reyna en gamla síðan verður kannski tekin upp aftur og rykið dustað af henni... hver veit :)
 

» 4 hafa sagt sína skoðun

13.11.2005 22:00:34 / bjorngayr

Slúður

Krakkar ég er farinn að brosa og það breiðar en oft áður, ég ætla að upplýsa ykkur um að það er kannski eitthvað stórt að koma í bloggheiminum, ekkert meira um það að sinni en .... stay tuned, it\'s going BIIIIG!

Always look on the bright side of life :D

» 8 hafa sagt sína skoðun

12.11.2005 21:47:33 / bjorngayr

THE END ?

Jæja, það svosem hlaut að koma að þessu eitthverntíman, en ég er að hugsa um að hætta með þessa síðu þar sem ég sé ekki tilganginn í þessu lengur, maður er farinn að gera þetta fyrir sjálfan sig og get ég alveg eins hugsað hlutina bara í stað þess að skrifa þá niður. Akkurat núna er ég kannski ekkert allt of sáttur, kannski verð ég glaður á morgun, hver veit ? en allavega núna langar mig bara að hætta þessu öllu og fara bara út og labba eitthvern risa stóran hring og hugsa mig um. Veit ekki hvort þið hafið lent í þessu en að vera búin að hugsa ógeðslega mikið útí eitthvað og pæla og pæla og síðan kemstu af því allt í einu að þetta var allt til einskis. Treystið mér ef þið hafið ekki lent í því, heppin/n það er virkilega glatað. En hvað um það, maður er farinn að nálgast 10.000 heimsóknir þó svo ég eigi svona 3-4 þúsund í þeim. Dýpsta bloggið hingað til, ætli það ekki en ég efast um að eitthver viti hvað ég er að bulla. En annars ætla ég að sofa á þessu og ákveða mig svo. bæ.

** Einnig hef ég fundið út flottasta lag í heimi held ég, það er Fix You með coldplay og hvet ég ykkur öll til að hlusta gaumgæfilega á textann í þessu lagi, og pæla svolítið í þessu. Skal spara ykkur fyrirhöfnina hérna er textinn

Life's a bitch.

Svo vitna ég í Arnold Svartanigger "I'll be back" ..... maby :|


Lag Dagsins : Jack Johnson - No other Way
Speki Dagsins:


When you try your best but you don't succeed
When you get what you want but not what you need
When you feel so tired but you can't sleep
Stuck in reverse

And the tears come streaming down your face
When you lose something you can't replace
When you love someone but it goes to waste
Could it be worse?

Lights will guide you home
And ignite your bones
And I will try to fix you

And high up above or down below
When you're too in love to let it go
But if you never try you'll never know
Just what you're worth

Lights will guide you home
And ignite your bones
And I will try to fix you

Tears stream down your face
when you lose something you cannot replace
Tears stream down your face
And I

Tears stream down your face
I promise you I will learn from my mistakes
Tears stream down your face
And I

Lights will guide you home
And ignite your bones
And I will try to fix you

» 7 hafa sagt sína skoðun

11.11.2005 20:47:27 / bjorngayr

Balliddí ball

    Já í gær fór fram hin árlega söngvakeppni sem kallast Hljóðneminn og ákvað ég að fara á söngvakeppnina og ballið sem var eftir á, þó svo félagar mínir hafi einungis ætlað á ballið, ég sé ekki eftir því. Ég sá engan annan en Gunnar Berg enskusnilling með meiru og hressan strák, rústa Chris Isaac - Wicked Game þar sem strákurinn fór af kostum með lopahúfuna á hausnum. Síðan voru fleiri misspennandi atriði þarna sem óþarfi er að fjalla um. Þetta leit vel út og ágætisskemmtun.
    Síðan stigu á stokk 2 ungar stúlkur sem ég hef þekkt í þónokkurn tíma, en þetta eru þær Valgerður og Edda Rós og þær tóku ansi skemmtilega útgáfu af Maístjörnunni og fannst mér þetta bara mjög töff. Aðrar áherslur í söngnum en maður á að venjast, ásamt því sem þær skiptust á að syngja og spila á fiðlu. Þessi útgáfa minnti mig all svakalega á ekkert annað en meistaraverk þeirra Sigurrós pila Dánarfregnir og Jarðafarir en það byrjar svona mjög rólega og svo kemur mjög rokkaður partur og það sama var uppá teningnum þarna, það komu trommu og læti. Kom mér skemmtilega á óvart þó svo ég hafi ekki búist við slæmu atriði þá reiknaði ég ekki með þessu.
    Úrslitin voru síðan tilkynnt og var ég engan veginn sammála þeim en ég var víst ekki í dómnefndinni, Valdi lenti í 3.sæti með Radiohead lag og svo var Marín ( held ég að hún heiti ) með eitthvað lag í 2. sæti og svo var eitthver Gígja með sigurlagið en það var með Evananencense og heitir My immortal. Svosem vel sungið en enganveginn gott lag :S Þegar ég var að ganga út heyrði ég ungan dreng segja nokkur orð sem ég ætla að vitna í, þetta er í fyrsta sinn sem ég fer á þessa keppni og veit ég ekki betur „Æji þeir leyfðu henni bara að vinna til að losna við hana á næsta ári“... hún hefur þá greinilega tekið þátt oft án þess að bera sigur úr bítum. Ég sel þetta ekki dýrara en ég keypti það. En þetta var reyndar mjög vel sungið og kannski átti hún þetta skilið.
    Síðan var kíkt á Olsen Olsen og fengið sér rækilega í gogginn og svo var haldið heim til Davíðs Sveins skúrinn hjá honum og þar voru hressir drengir fyrir og féll maður vel inní hópinn að ég held. Þarna voru þeir félagar Davíð, Brynjar og Ívar ásamt Birki Má, Binna, Antoni, Bjarna Geir, Garðari og Fannari Óla. Seinna bættust Magni og Einar Orri við. Þetta er með betri fyrirpartýum sem ég hef farið í og þarna var hörku stemning og mikið sungið.
    Síðan var tekinn taxi uppí stapa og farið á ballið, ætla ég ekkert að fara útí nein smáatriði á ballinu nema það að ég skemmti mér konunglega framan af balli þar sem orkan kláraðist endanlega og var maður svona frekar daufur í restina, síðan var bara rölt heim og farið í bælið.

Myndirnar eru komnar á síðunna hjá Dabba !
hérna eru myndirnar á síðunni hans Dabba


ég og cookie, stigin voru nokkur spor, ekki slæmt það eyhh?

Helgi og EinarOrri enþá í sigurvímu eftir frækinn sigur Strawberrys á bearcup

Emma, ég og Helgi.



Lag Dagsins : Young Jeezy - Soul Survivor
                       50 cent - Hustlers ambition
                       Go West - Pet Shop Boys

Þá er það komið, ég bloggaði ekki mikið um bearcup enda mikið um nánari lýsingar á þeirri keppni. t.d. á /bgudlaugsson /bitill- og /fanfab hvet ég bara fólk til að kíkja á þessar síður og kynna sér málið.

» 2 hafa sagt sína skoðun

09.11.2005 23:54:39 / bjorngayr

fawking shawt

    Jæja, þá er maður vaknaður =( búin að sofa síðan 6 og líst mér engan vegin á það að sofna á eftir, ætli maður liggi ekki bara uppí bæli þar til skólinn byrji. Hata að lenda í svona rugli. Skemmtilegt nokk það að ég vaknaði áðan svona smá kl. 21:00 og fyrsta sem ég gerði var að horfa á ManUtd. klukkuna mína, og hugsa "Vá hvað ManUtd. er góðir ... þokkaleg" svo bara "nei djöfulinn #"$#"$" svaf yfir mig, og eitt en skrópið í dönsku komið" ( þar sem ég er alltaf í dönsku í 1. tíma ) síðan kíkti ég á hina klukkuna og sá að hún var 21:00 en ekki 9:00. Munar smá ? ;) en gaman af þessu engu að síður, kannski maður dusti rykið af bíómynda möppunni minni, þar sem ófárar myndirnar eru sem maður hefur niðurhalað af vefnum í gegnum árin... Held ég viti ástæðu þess að ég er búin að sofa í allan dag, ástæðan er sú að ég við erum að fara skila stóra verkefninu á morgun í SAM. og var ég í tvöföldum tíma eftir hádegi og var að gera þetta frá 12:15 - 15:45 stanslaust nánast. Ég , Sunna, Guðbjörg og með góðri aðstoð Arnars kærasta Sunnu sem hjálpaði okkur alveg helling ásamt því að styða mig í ýmsum rökræðum í sambandi við að skrifa ekki hvern einasta kaffibolla sem þau drykkju :D
    Ég er búin að ákveða það að akkurat núna eftir 24 klst verður ógeðslega gaman hjá mér, ég ætla að koma mér í Morgunblaðið, og toppa þar með Garðar Birgis, en hann kíkti víst aðeins við í   DV  fyrir ári síðan eða eftir síðasta hljóðnema ball :P Sumir geta bara ekki hamið sig :haha: Annars meðan ég svaf var ég með kveikt á tölvunni aldrei þessu vant og var að ná mér í ágætann slatta af mússík, ég náði í 6 stk geisladiska

        1. Pottþétt 17
        2. Pottþétt 18
        3. Pottþétt 19
        4. Pottþétt 20
        5. Pottþétt 21
        6. Pottþétt 22

    Ég er búinn að finna ógeðslega mikið af geggjuðum lögum og fær maður bara flassback dauðans að hlusta á þetta, lögin sjálf eru þvílíkt þekkt en maður var reyndar ekkert með nöfninn eða flytjandann á hreinu þegar þetta var blastað hérna diskótek eftir diskótek.. koma með nokkra slagara ? hmmm mjámjá

Aaron Carter - I want Candy,
True Steppers - Buggin ( wont you stop buggin me )
Kelis - Good Stuff,
Sisqó - Thong Song,
Aaliyah - Try again, ásamt miklu fleiri lögum sem ég nenni ekki að skrifa.... :D hahah

Lög Dagsins : Moby - Natural Blues
                       Superfunk - Lucky Star

                       Backstreet boys - Show me the meaning of beeing lonly
                       The Lawyer - I wanna mmmm.... ( haha eini textinn í laginu )
                       Five - Dont wanna let you go ( helvítis já )

Heimasíða Dagsins : Slúður hornið á síðunni hans Binna, kvet ykkur nú samt ekkert til að trúa öllu sem stendur þarna, en kannski er eitthvað vit í þessu, maður hefur nú heyrt mikið af þessu áður en ekki allt, Binni All Over The Place



þess má geta að öll lögin eru einnig af þessum diskum.... Komið gott í bili, farinn að drepa tímann áður en maður fer í skólann, það verður örugglega ekkert allt of mikið sofið


iPod B O B A , eins og bubbi myndi orða þetta

Varðandi þetta kítlerí þá geri ég það á morgun, þegar ég kem heim af ballinu :D það yrði virkilega töff :D held ég geri það

Björn.Flashback kveður... þokkalega

» 8 hafa sagt sína skoðun

08.11.2005 18:36:08 / bjorngayr

Tenglar

    Ég ákvað að taka mig saman í andlitinu og þruma upp örfáum tenglum á hinar ýmsu síður annarra bloggara og eru þetta þær síður sem eru á „bloggrúntinum“ mínum sem ég kíki á nokkrum sinnum á dag ( kannski full oft )..
   
Endilega ef þú ert ekki þarna og finnst þú eigir að vera þarna endilega sparkaðu í mig við tækifæri... attlæ ?
    Svo styttist í hljóðnemann og svona fínerí þar sem kíkt verður á staðinn og vonandi fylgst með söngvakeppni og síðan eftir það er ball eitthvað fram eftir kveldi, hljómar gríðar vel. Síðan er G.Birgisson að plana ferð morguninn eftir í sundlaugina og naga nokkur kork og kíkja í rennibrautina :D ef af því verður mæti ég hress í laugina :)

Lag Dagsins : 50 cent - Window Shopper
                       Hjálmar - ég vill fá mér kærustu
                       Jack Johnson - Better Together  ( ofur lag )

kedelig, pölser, flodeskum


» 11 hafa sagt sína skoðun

07.11.2005 00:48:28 / bjorngayr

helgin

Ætla að skella inn nokkrum myndum sem lýsa gjörsamlega helginni hjá mér og 9 öðrum einstaklingum. aiit











=

vera í tölvunni heila helgi :)



» 17 hafa sagt sína skoðun

04.11.2005 15:06:10 / bjorngayr

skólavikan á enda once again

    Jeij, helgarfrí... frekar slöpp vika framundan. Kjeppinn veikur heima á þriðjud og svo var bara helling verið að læra og svona leiðindi. Reyndar var hreinlætis keppni í matsalnum og tók boðið mitt þátt ( auðvitað, bara eintómir snirtipinnar sem fá að sitja þarna ) Byrjuðum við sérstaklega vel og vorum með -3 stig þegar ladyclub borðið var kominn með 11 og var það ljóst að við værum ekkert rosalega sterkir í því að halda borðinu hreinu, enda borðum við örugglega meira en flest önnur borð. Muffinnhead alltaf með kleinuhring með karlmellu og er alltaf eitthvað að sullast með þetta, svo eru nokkrir með sæmilega stóra maga þarna og þarf talsvert magn til að fylla þetta, og já þá er ég að tala um aðra með stóra maga en mig sjálfan ;)
    Úrslitin voru hins vegar tilkynnt í dag og var það eitthvað borð sem vann sér inn pizzuveislu, þar sem þetta var eitthvað þar sem 3 stelpur sátu og er þetta borð tómt mest allan daginn. Við enduðum með -10 og fengum víst eitthver skammarverðlaun sem átti að vera að benda og hlægja að okkur, en þar sem ég var í stuttarmabol og fólk sá byssurnar og svipinn á mér þar sem ég var ekki sáttur með að hafa ekki unnuð, þá þorði fólk ekki að segja neitt við okkur :D
    Annars hringdi Mummi í mig í gær og fórum við á Evrópuleikinn í gær þar sem Keflavíkingar voru flengdi af eitthverjum finnsku vodka drykkju mönnum. Keflvíkingar voru bara skotnir í kaf strax í upphafi en áttu reyndar eina mjög góða rispu þar sem Adrian Henning fór af kostum og var gaman að sjá svona tilþrif.
    Svo ákvað ég að kíkja á tónleika sem haldnir voru á paddys síðar um kveldið þar sem nýja útgáfan af ritz spiluðu, reyndar er þetta alveg sama bandið, nema komnir með nýtt efni og nýtt nafn. Ritz nafnið hefur verið lagt á hilluna og man ég ekki nýja nafnið.. hahah. Eitthvað svona enskt dæmi.
    Síðan var kíkt á Kaffihúsa kvöld og var það nokkuð skemmtilegt og mikið spjallað og pælt í hlutunum, tókum smá pool og gekk ég síðan áleiðis heim og fór fljótlega í bælið eftir það.
    Um helgina verður reynt að gera eitthvað skemmtilegt eins og venjulega og er svona smá planað en það kemur allt í ljós.

Lag Dagsins : Inner Circle - Bad Boys
                        Jay Z - Be like Hov
                        LoopTroop - Fort Europa ( hefur verið spilað í óhófi, geggjað lag hér á ferð )

segjum þetta gott að sinni,
BjörnTölvuTóti kveður - með músina í annari og svitalykaeyðir í hinni :)

» 10 hafa sagt sína skoðun

01.11.2005 10:42:39 / bjorngayr

mjá...

    GARG!, ef ælupest er ekki verst í geimi þá veit ég ekki hvað... hata þennan sora. Ég vaknaði frekar slappur í morgun en ákvað að láta reyna á þetta og skellti mér í skólann og fór í leikfimi í fyrsta tíma og ætlaði að taka því rólega. Vorum í fótbolta og lenti mitt lið 3-0 undir og þá kom keppnisskapið í mann þar sem menn voru að reyna strá salti í sárin yfir stöðunni *hóst* Bjarni *hóst* og þá fór maður að hlaupa full mikið en reyndar borgaði það sig kannski og unnum við 4-3. :D en þetta fór gjörsamlega með heilsuna á mér og ætla ég ekkert að fara nánar útí framhaldið.. you dont wanna know, trust me!
    Núna í skólanum er byrjuð svona keppni um snyrtilegasta borðið og fær það borð sem er snyrtilegast pizzuveislu í verðlaun, ég held að það sé lítil samkeppni við borðið sem ég sit alltaf við, en þar er samansafn snyrtipinna og förum við létt með þessa keppni. Reyndar sást til mikills sóðaskaps á borðinu við hliðina á í morgun :S en þau vinna þá ekki keppnina.. svo einfalt er það.

Lag Hreinlætiskeppninnar : Judas Priest - Breaking the Law

    Varðandi laugardagskvöldið, þá leit það svona semi rólega út til að byrja með þar sem ég kíkti til Brynjars og þar var Jón og Gummi Simba og horðum við á School of Rock sem er án efa snilldarmynd. Síðan var some Þórsmerkurteiti á H-inum en þar var fólk að drekka sorgir sínar í burtu þar sem ferðin var flautuð af á síðustu stundu ( kannast við það, reyndar voru það gleðifréttir fyrir mig ) Ég hef verið að vafra svolítið um á veraldarvefnum og fundið ógríni af myndinum þar sem nokkrar ungar dömur voru ansi duglegar með myndavélarnar.


Garðar Birgis og ég, Garðar hressasti maður hússins að vanda
(c) Sara

Lag Dagsins : Neil Young - Keep on Rocking in the free world.

     En þar sem ég er ekki alveg sá hressasti í bransanum þá ætla ég að skella mér í bælið og kíkja kannski á 1-2-3 bíómyndir eða svo, þar til næst.

VomitMan grípur fötu og Coke, og beinustu leið í bælið...

» 26 hafa sagt sína skoðun

29.10.2005 19:44:35 / bjorngayr

<3 Vetrarfrí :D

     Jæja Vetrarfríið á enda en helgin gengin í garð. Vetrarfríið var rólegt til að byrja með en hefur skánað með hverjum deginum. Miðvikudagskveldinu var bara varið heima fyrir framan imbann svosem fínt að gera það af og til.
    Á fimmtudaginn skellti ég mér reyndar á tónleika niðrí 88 húsi þar sem Exem, 2 Leikmenn, Æla, Lokbrá ásamt Mekstra voru mættar til að trylla mannhafið sem mætt var til að bera goðin augum. Mér persónulega fannst Lokbrá sanda uppúr og komust hinar hljómsveitirnar ekki með tærnar þar sem þeir höfðu hælana.
    Eftir tónleikanna ætluðum við Helgi að töllta heim í þessu yndislega veðri og láta hafgoluna blása um rjóðar kinnar okkar. Mikið flipperí og þess háttar á leiðinni heim sem endaði með ósköpum þar sem Helgi ætlaði að reyna að "pulla" eina brellu sem ég gerði, en það endaði ekki betur en að kappinn sparkaði í tröppu og reif skóna sína með tilheyrandi sársauka og blóði. En sem betur fer átti ungur drengur úr Gerðahrepp leið framhjá og sá okkur hlaupandi um í hettupeysum, sparkandi í rafmagskassa og gera alls kynns prakkarastrik, þessi ungi piltur sem tók okkur opnum örmum og bauð okkur inní corolluna sína með einkanúmerinu var enginn annar en Heiðar og rúntaði hann smá með okkur. Síðan fór ég út og ætlaði að labba heim en það varð ekkert úr því og ákvað ég að kíkja á traffic þar sem það var kaffihúsakvöld. Þar var bókstaflegag engin stemning og bara hundleiðinlegt, ég var ekki í stuði til að fara á paddarann þar sem steminingin var þar sem ég vissi hvernig það hefði endað.
    Föstudagskvöldið leit allt annað en vel út, þar sem hélt að maður yrði veðurtepptur inni en svo reyndist ekki vera, ég kíkti til Péturs Karls og þar voru Kjarri, Jói og Mummi mættir og vorum við að spila eitthvað afbrigði af Popppunkti o.fl. Síðar var kíkt til Summa og var það alveg fínt. Síðan birtist ég heima og sofnaði.
Núna er bara stálið að gera eitthvað skemmtilegt og fullkomna þetta ágæta Vetrarfrí+helgi.

Lög Dagsins : 2 Leikmenn - Gerist ekki af ástæðulausu
                        Lokbrá - Ride the Walrus
                        Janis Joplin - Take another little piece of my heart.
                        Ásamt öllum lögum með Busted...


Hressir piltar...

Já eins og frægt er orðið var sá yndælispiltur Einar Orri Einarsson 16 ára hérna á dögunum og fagnaði vetur konugnur afmælisdegi hans með skítaveðri og viðbjóði en við látum það ekkert á okkur fá og langar mig að óska Gröfunni til hamingju með þennan merkisáfanga.


en segjum þetta gott í bili.. ogima soida

» 5 hafa sagt sína skoðun

25.10.2005 19:25:12 / bjorngayr

Helgarbloggið 21.-23 október

     Mjá helgarbloggið víðsfræga.. ég tyllti mér á bossan og ætlaði mér að skrifa svaka blogg um helgina, hugsaði bara "já, föstudagur" ég man ekkert hvað ég gerði á föstudaginn, held ég hafi bara nánast ekkert gert og verið bara heima og horft á TV minnir mig :S... en helgin var nú ekki öll svona óspennandi.
    Laugardagurinn, búið var að plana laugardaginn smá, við ætluðum að kíkja til Viktors og hanga þar eitthvað í smá tíma og kíkja svo út. Ég mætti þarna ásamt Jóni og Brynjari og þá voru Garðar Eðvalds, Birkir Már, GymMasterMuscle og MagniMicra mættir og stuttu bættist Bjarki við. Við spiluðum NBA live 2006 ásamt því að horfa á eitt viðbjóðslegasta myndband sem komið hefur á veraldarvefinn og ætla ég ekki að skemma nætursvefn saklausra ungmenna með því að setja linkinn hérna, en þeir sem endilega vilja sjá meiga tala við mig á msn, en ég varaði ykkur allavega við.
    Eftir frekar stutt stopp hjá Viksa þurftum við að fara. Viktor fór þá í miklar samningaviðræður við mannskapinn sem reyndar reyndust ónauðsynlegar þegar kvöldinu lauk. Ég kíkti með MagnaMicru smá út á röltið ;) en síðan pikkuðu Johnny og Bjarki mig upp og tókum við smá rúnt en síðan fórum ég og Bjarki smá í njarðvík meðan Jón þurfti að snúast smá, stuttu seinna mætti Johnny "sitting on crome" aftur enda búin að skipta um bíl og mættur á *blingblingMobile* og ekki af verri endanum. Benz jeppa á krómfelgum sem kostuðu tæpa 1 milljón, og já.. þá er ég bara að tala um 4 felgur. Maður fékk að láta fara vel um sig í aftursætinu en reyndar var engin bíómynd sýnd í þessu flug þó svo allar græjur hafi verið til staðar til þess :).
    Seinna um kveldið var kíkt til Teits en þar voru nokkrir krakkar mættir og það fjölgaði þegar daga dimma færðist yfir Njarðlem. Þarna voru svona flest allir sem ég þekki bara yfir höfuð... nokkuð fínt þetta kvöldið og gekk svona stóráfallalaust fyrir sig. En nóg um það...

Lag Dagsins : Nickelback - Photograph
Sign - A little bit

Pæling Dagsins : Ég var svona að spá í því núna um daginn, hvað ég er oft ógeðslega óheppinn drengur.. ég veit ekki hvað ég gerði af mér en oft gerast hlutir fyrir mig við ótrúlegustu tækifæri sem nánast aldrei gerast annars :S.

  • Ég var veikur á mínu fyrsta Para&Vina balli, ég varð veikur svona 30 mínútum fyrir ballið og eitt það fyrsta sem ég gerði þegar ég kom inn á ballið sem haldið var á N1 bar það árið, fyrsta sem ég gerði var að æla í ruslafötu rétt við innganginn þar sem ég komst ekki inná klósettið í tækatíð, og heyrði ég lítið annað þegar ég labbaði þar framhjá en comment eins og "ojj hvaða ógeðslega lykt er þetta"
  • Ójá.. ég var líka veikur á öðru Para&Vina ballinu mínu... ég sem er voða sjaldan veikur, nema kannski svona .. nenniekkiískólann veiki sem hrjáir marga. Reyndar gerðist ekkert rosalegt en eyddi mestum tíma á ballinu sitjandi á rassgatinu en lét það ekki aftra mér síðstu mínútur ballsins þar sem maður reyndi nú að njóta þess að vera þarna.
  • Já óheppni minni á þessum blessuðu para&vina böllum er ekki lokið en ég mætti sjálfsögðu heill heilsu á þriðja og síðasta ballið. Byrjaði bara glimrandi vel, en um mitt ballið þegar maður var dansandi þarna í miðjum hópnum í góðum gír vildi svo óheppilega til að ég var skallaður í hnakkann ( hef verið hnakki síðan ) þvílíkt fast að ég varð vankaður og svimaði restina af ballinu, ég var spurður svona 10x hvort ég væri ölvaður en ég var það nú ekki.
  • Eitt kvöld þegar undankeppni Eurovision var haldið var ég jolly hérna heima ásamt félaga mínum eitthvað að fíbblast, ég var bara á stuttbuxum og tánnum og vorum við eitthvað að fíbblast með lóð sem systir mín á ( sem betur fer bara 3kg ) en þessi ágæti félagi minn ákveður að kasta því til mín og ég sný mér við og sé fljúgandi lóð koma í áttina að mér, ég bakka og ætla að passa mig að fá þetta ekki í mig, ég næ næstum að forða mér en nei, ég reyni að hoppa frá og leið held ég um tíma eins og Superman, sem alltaf kemst undan á síðustu stundu, það vill ekki betur til en ég er næstum kominn undan þegar loftið fer í gólfið, en þá er stóra táin mín ekki alveg sloppinn og fer lóðið ofan á hana og sauma þurfti 6 sport auk þess sem taka þurfti nöglina af, þarna var mikið um blóð og viðbjóð en táin er svolítið stökkbreytt enþá...
  • Til að toppa þetta allt saman, þá er ég vonandi einn af fáu sem hefur orðið bensínlaus í flugvél, já trúiði því eða ekki... þetta er dagssatt.. þetta er eina skiptið sem ég hef virkilega haldið að ég væri að deyja en því miður þá gerðist það ekki ;) Hérna er frétt um þetta en það var víst ekkert af flugvélinni.. bara 2 ára sonur flugmannsins sem var að fikta og skipti um bensíntank og þessi sem hann skipti yfir var víst alveg að verða bensínlaus :)

idolið mitt :)

Svona gæti ég haldið lengi áfram en ég efast um að eitthver hafi meira að segja nennt að lesa þetta.... hahahah ;) en ef þú nennti því... mad props :)

komið gott, þar til næst... l8er

» 8 hafa sagt sína skoðun

22.10.2005 18:37:37 / bjorngayr

darn helgi

Er ekki föstudagur í dag ?, nei það er Laugardagur... jísses..

    Í dag kom ég heim úr skólanum rétt um 3 leitið.. á laugardegi, en það verður nú frí næsta fimmtudag og föstudag þannig þetta er ætti að bjargast.
    Í dag mætti ég í skólann rétt rúmlega hálf 11 svona pínu seinn og mætti í dönsku, hún Sumarrós skuttla var ekkert að slá slöku við og lét okkur gera eitthverja fjárans ritun. Svo var farið í íslensku og þar vorum við látinn glósa eitthvern fjárann, sem betur fer voru þessir tímar 2 bara 25 mín annars væri ég farinn að missa hárið. Svo var kíkt til MÓA í stæ og þar var nánast ekkert gert og bara slakað á. Svo kom hádegi sem var í styttri kanntinum og fékk maður sér eitthvað smá í gogginn. Svo var farið í Sam og var það nokkuð gott og svo hélt ég að ég ætti að fara í tíma en var víst í eyðu, ég fattaði það svolítið seint og fór þá bara í dönsku með Garðari Birgis og kíkti ég í tíma hjá Hans nokkrum Uwemæster, sem ég hef aldrei gert en búin að heyra sögur af kappanum. Að hlusta á gæjann tala er náttulega gargandi snilld og ekki hægt að verjast brosi. Hjá Uwe var blastað danskt rapp, rokk, og pop. Gríðar gaman.
    Eftir þetta mátti maður fara heim en ég ákvað að slaka á niðrí matsal og horfa á söngatriði þar sem Léttsveitarmeðlimir FS tóku nokkur fönkuð lög og var það bísna töff, þar sem Reynir Nói Örn fór af kostum á gítarnum as usual.
    Svo var eitthver spurningarkeppni þar sem Elín Inga, HilmarsundGarpur og SiggiTheBull voru fyrir hönd Fs á móti, Rúnna Júll, Kjartani og Eitthverjum gaur og unnu nemendur eftir að nautið svaraði nokkrum mikilvægum spurningum í restina, leynir á sér kappinn og veður hann vitið upp fyrir haus kallinn.... alveg flug gáfaður.
Svo er bara stálið að gera eitthvað skemmtilegt í kveld, eitthvað sem ég hef ekki gert lengi... en hvað það verður verður bara að koma í ljós. =)

Lag Dagsins : Mínus - Dont hold back ( nýr skítur og lofar góðu )
                        Coldplay - Talk ( fæ ekki nóg af þessu )

Setning Vikunnar : "fokkings snilld" - Ég þegar það var frí í sam, 2 kennarar veikir á sama deginu, what are the odds. Þessi setning sló í gegn.

Einnig vill ég minna á 2 lög með meistara Hafsteini Þór, heitur rappari hér á ferð.
Hafsteinn - Draumurinn
Hafsteinn - Tálkvendi
Íslenskt rapp sem fjallar ekki um berar kellingar, krómfelgur og þess háttar =) er að fýla þetta í ræmur.

Annars hef ég lítið að segja.. þar til næst, Signing out...

» 5 hafa sagt sína skoðun

19.10.2005 19:12:35 / bjorngayr

tískublogg

    Eins og nafnið gefur til kynna þá mun þetta blogg vera tileinkað tískunni. Ég er svo lánssamur að þekkja 2 tískulöggur og held ég bara að þeir séu tískulöggur FS. Þeir hafa verið að fylgjast með nýjustu tísku og straumum í tískunni og eru búnir að komast algerlega af því, hvað er í tísku. Þessar löggur eru engir aðrir en Brynleifur ( Brynjar ) og bloggarinn ógurlegi GymMasteFashion ( Gummi Simba )... þegar ég kom heim í dag ákvað ég bara að skella smá mynd og texta við hvert tískufyrirbæri og ætla ég að láta myndirnar tala.







    Ef þú átt eða gengur ekki í eitthverju af þessu, þá ertu ekki töff... það er nokkuð ljóst. Þá ertu bara plebbi og mátt bara skríða aftur ofan í holuna þína aiit ?
    Sjálfur þá er ég allasvakalega töff af þessu að dæma enda tók Sumarrós dönskukennari mig fyrir í dag og leið mér eftirá eins og sparkaði hafi verið í mig liggjandi en hún sagði að ég væri ekki að leggja mig fram í dönsku og að ég gæti gert betur en ég væri bara svo hrikalega svalur, þess vegna væri ég ekki að leggja á mig :cry:
    Ég á 2 pör af vans skóm, 5 rifnar gallabuxur, 2 dickies ( sem ég nota reyndar lítið ), ég hef hlutað mikið á Mugison í gegnum tíðina, ég á Reykjavíkur derhúfu, og 2 poloboli.... er ég töff ? that's for me to know and you to find out *tíhí* :D:D

    Gaman væri að vita ef eitthver þarna úti sem les þetta blogg eigi ekki neitt af þessu... efast samt stórlega um það, Gummi Simba sem er tískulögga en hann er samt ekki töff, en hann á allavega converse skó og hann hlustaði mikið á Mugison hérna ekki alls fyrir löngu.

Lag Dagsins : Mínus - Svarti Sauður

signing out.............................................................................. you want to sign in.


» 17 hafa sagt sína skoðun

14.10.2005 17:22:52 / bjorngayr

engin þórsmörk feis


Engin þórsmerkurferð, frestað vegna

þess að það var ófært or sum

» 3 hafa sagt sína skoðun

14.10.2005 13:58:40 / bjorngayr

ofur helgi framundan =/

Já dömur mína og herrar, þá er komið að helgarblogginu mínu... fyrir klukkan 2 á föstudag !

Eins og kannski sumir þá er ég að fara í hið landsfræga Sam-ferðalag á eftir og verður það örugglega hörku stemmari :$.. Ég sé 0 tilgang með þessari ferð en ég hef reyndar heyrt 2 mismunandi sögur af þessu, hinsvegar geggjað gaman og svo líka alveg skítaferð, held hún geti verið geggjuð ef allir eru hressir og nenna að gera eitthvað þar sem við þurfum að skipuleggja og ákveða allt sjálf, engin dagsskrá. Persónulega er ég ekkert eitthvað rosa spenntur fyrir þessu og verð örugglega eitthver fýlupoki eða jafnvel að maður noti þessa ferð bara í svefn eins og ein ung stúlka sem ég talaði við... líst mjög vel á það.
    Annars er það að frétta af mér að ég skellti mér á Ránna í gær og kíkti á Mugison, sem er án efa einn sá heitasti þessa daganna, ég hef alltaf soldið hlutað á hann en aldrei neitt svona ofur mikið, sko ef ykkur finnst diskurinn góður þá getiði bara rétt ímyndað ykkur hann live, hann fór gjörsamlega af kostum á sviðinu. Muggi reitti af sér brandarana og tók hress lög ásamt því að taka róleg lög, konan hans söng með honum í nokkrum lög og var það mjög flott. Það var víst 18+ inn en lítið sem var gert í þeim málum sýndist mér en allt í góðu þar sem ég er orðinn 18 og sýndi skilríkin mín í gríð og erg þegar á þurfti að halda, Kjartan Már í pretzel ætlar að koma á námskeið hjá mér eitthverntímann til að læra af þeim besta hvernig á að halda sér inni :).
    Eftir þetta var kíkt á Traffic og hangið þar eitthvað fram eftir kvöldi og bara fínn stemmari í restina allavega, þegar ég mætti voru eitthverjir 2 gamlir kallar á sviðinu og var ég endanveginn að digga það hvernig þeir útfærðu þessi annars frábæru lög, höfðaði kannski til elda fólk, og þá er ég að tala um 40+.

Þetta blogg er tileinkað Mugison og öllum þeim sem mættu ekki á meistara Mugison í gær :$


Da Man. Mastah Múgí.

Mér finnst það nú viðeigandi að Muggi eigi líka lög dagsins og á hann það svo sannarlega skilið eftir frammistöðuna í gær.

Lög Dagsins : Mugison - Ég er lúði
                       Mugison - 2 birds
                       Mugison - What should I say in your funeral.

Annars er ég farinn að pakka... ohh svo gaman að segja þetta, ekki satt stelpur *tíhí* en ég víst bara að fara í eitthvað skitið sam-ferðalag.
Svo væri gaman að fá álit þeirra sem fóru á mugison í gær á tónleikunum.
Þar til eftir helgi...
signing out................

» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7